Tæpt kíló! Hljómar það ekki betur en 900 grömm?? Allavega það var staðreyndin eftir síðustu viku! Allt sem fer niður kemur aldrei upp aftur! Ég er sátt. Ég að sjálfsögðu var ekki í strangri megrun alla verslunarmannahelgina, þar sem ég fékk ekki pössun plús að við ákváðum að “make a day of it” á sunnudeginum… fórum að borða og fengum okkur smá hvítt & bjór… fjútt fjú – rómó og yndislegt! Algjör næring fyrir sálina mína, þar sem ég var búin að húka inni í fýlu alla helgina þá var þetta einmitt það sem að mínum vantaði! Svo að 900 grömm er alveg vel ásættanlegt!
Í morgun mældi ég mig alla aftur – kannski það sem mestu máli skiptir. Mér finnst hingað til ég hafa fundið mestan mun á maganum og upphandlegginum og það var kannski ekkert fjarri lagi hjá mér.
Magi: -4 cm
Rass: – 4 cm
Hægri læri: – 2 cm
Vinstra læri: – 3 cm
Brjóst: o cm
Upphandleggir: -2 cm hvor
Kálfar: +2 cm hvor!!!!!!
Hvað er í gangi með kálfana á mér?? Ég pínu orðlaus með það og svo líka með brjóstin…! En já – ég held að það hafi ekki verið skekkja í þessu – var mjög nákvæm síðast þegar ég mældi og gerði eins núna! En já – þetta eru tölurnar!!!!
Hvernig gengur ykkur fór – Sukkmannahelgin alveg með ykkur?








